Gamalt orðatiltæki segir að því meira sem maður veit því minna skilur maður. Það má heimfæra yfir á ferðaskrifstofuna Nazar sem hér hefur starfað um hríð. Verðlagning þessa aðila er með öllu óskiljanleg.

Í undantekningartilfellum getur borgað sig að kaupa flug til Noregs og fara þaðan í sumarfrí með Nazar en gera það héðan.

Í undantekningartilfellum getur borgað sig að kaupa flug til Noregs og fara þaðan í sumarfrí með Nazar en gera það héðan.

Fararheill hefur um hríð reynt að átta sig á verðlagningu Nazar hérlendis og þá í samanburði við útibú Nazar í Noregi, Svíþjóð og Danmörku en á öllum stöðum selur ferðaskrifstofan ferðir. Þessar ferðir eru í öllum tilvikum nákvæmlega eins fyrir utan flugið og því ætti samanburður að liggja nokkuð ljós fyrir. Það er hins vegar ekki raunin.

Almennt séð eru Íslendingar að greiða hærra verð fyrir sömu ferðir en annars staðar en munurinn þó ekki meiri en svo í flestum tilvikum að eðlilegt geti talist. Það er jú nokkuð lengra frá Íslandi til Tyrklands en frá Danmörku.

En aðeins lengra flug skýrir til dæmis ekki hvers vegna tveir íslenskir einstaklingar sem dvelja viku á Pegasos Resort um miðjan júlí greiða aðeins samtals tólf þúsund krónum hærra verð en Norðmenn sem njóta sama hótels á sama tíma. Ef sömu einstaklingar dvelja hins vegar á hótelinu í tvær vikur en ekki eina þá er verðmunurinn á sömu ferð allt í einu tæp 70 þúsund krónur Norðmönnum í vil. Ætli Íslendingar borði meira af hlaðborðinu en frændur okkar rétt fyrir brottför? Noti sundlaugarnar oftar síðari sjö dagana? Drekki mikið meira seinni vikuna?

Sök sér að verðlagning sé óljós og ógegnsæ. Öllu verra þegar við Íslendingar þurfum að greiða helling meira fyrir sömu ferð en Norðmennirnir eins og sjá má hér að neðan:

nasnor1

nasisl1

Miðað við miðgengi dagsins eru 19.810 norskar krónur alls tæpar 373 þúsund íslenskar krónur. Verðmunurinn á þessari nákvæmlega eins ferð frá Noregi og Íslandi er 187 þúsund krónur. Með tilliti til launa í löndunum tveimur ætti þetta nú að vera öfugt.

Slík öfgadæmi eru ekki mörg en finnast þó og sjálfsagt fyrir fólk að skoða slíkt ofan í kjölinn. Þá er ágætt að hafa í huga orð forstjóra Nazar þegar útibúið hér var opnað að EKKI stæði til að fara í neina verðsamkeppni við innlendar ferðaskrifstofur.