„Þó vegalengdirnar séu ekki ýkja langar á Kanarí og Tenerife verða þeir sem ætla að gera áfangastaðnum góð skil að hafa ökutæki til umráða. Bíll í minnsta flokki kostar að minnsta kosti rúmar tvö þúsund krónur á dag sem er álíka mikið og einn farþegi borgar fyrir rútumiða frá flugvelli og að hóteli. Par á ferðalagi borgar því um tíu þúsund krónur fyrir rútuna til og frá flugvelli en bíll í viku kostar að lágmarki rúmar sextán þúsund krónur. Það er því ekki mikið dýrarar að sjá sjálfur um keyrsluna, sérstaklega ef hótelið býður upp á frí bílastæði.

Að halda því fram að rúta til og frá flugvelli á Kanarí eða Tenerife kosti svipað og bíleigubíll í viku er tóm steypa út í eitt. Mynd Secret Tenerife
Ferðavefurinn turisti.is er með ráð fyrir íslenska Kanarífara að því er fram kemur hér að ofan sem er tilvitnun í nýlega grein um bílaleigukostnað á Gran Canaria annars vegar or Tenerife hins vegar.
Ekki vantar „lækin“ við þessa grein túrista sem kemur á óvart því hugsandi fólk ætti að setja allnokkra feita fyrirvara við greinina. Nema hugsandi fólk sé í miklum minnihluta þeirra sem lesa viðkomandi vef…
Í fyrsta lagi er ofangreint þokkalega óskiljanlegt þeim er lært hafa stærðfræði 101. Bíll í minnsta flokki kostar tvö þúsund á dag sem er álíka og farþegi greiðir fyrir rútuferð frá flugvelli!!!
Hvaða flugvöll er maðurinn að tala um? Frá flugvellinum á Kanarí, Gran Canaria, kostar rúmar sex hundruð krónur aðra leiðina til Playa del Ingles á Maspalomas þar sem þorri hótela íslenskra ferðaskrifstofa er til staðar. Á Tenerife eru tveir alþjóðaflugvellir. Frá þeim syðri, sem íslenskar ferðaskrifstofur nota hvað mest kostar 540 krónur á mann að fara frá flugvellinum að Los Cristianos á Costa Adeje. Tóm þvæla hjá túristanum.
Í annan stað er sami túristi að plögga, kynna, sinn eigin bílaleiguvef og verðið sem tekið er mið af er eitthvað meðalverð hjá þeirri bílaleigu sem túristi er umboðsmaður fyrir og fær prósentur af leigu.
Í þriðja stað þetta: „Par á ferðalagi borgar því um tíu þúsund krónur fyrir rútuna til og frá flugvelli.“ Hvaða vitlausa par er það? Sama par og ákveður að borga yfirverð í rútuna? Rugl. Kostnaður á par til og frá flugvelli á Kanarí er samtals 2.400 krónur og til og frá flugvelli á Tenerife Sud alls rúmar tvö þúsund krónur.
„[..]en bíll í viku kostar að lágmarki rúmar sextán þúsund krónur. Það er því ekki mikið dýrarar að sjá sjálfur um keyrsluna.“ Það var og. Túristi býr til einhvern fáránlegan kostnað fyrir rútuferðir og hamrar svo járnið með þessu. Að halda fram að svipað sé að leigja bíl í viku og taka rútu til og frá flugvellinum er hreinasta blekking. Og segir sitt um hvað túristi er raunverulega að gera. Ekki láta blekkjast af ruglinu.







