Við gátum ekki staðist mátið. Samtök ferðaþjónustunnar, stjórnvöld og töluvert fleiri hagsmunasamtök en það fóru mikinn hér fyrr í vor þegar hópar starfsfólks Icelandair hótuðu eða fóru í verkfall til að krefjast mannsæmandi launa hjá fyrirtæki sem mokar inn seðlum.
Samtök ferðaþjónustunnar sérstaklega höfðu uppi stór orð um hvað verkföll hefðu nú ægileg áhrif á upplifun erlendra ferðamanna af Íslandi. Sömu samtök vitaskuld og hafa Icelandair innan sinna vébanda. Stjórnvöld settu lög á verkföll enda Icelandair „of stórt til að falla“ ef svo má að orði komast. Sem fyrirtækið er og hafa stofnanir á borð við Samkeppnisstofnun gefið út sérstakar skýrslur þess efnis.
En okkur hjá Fararheill er spurn. Hvaða áhrif hafa öll þessi neikvæðu komment á fésbókar- og tístvef Icelandair? Hvaða áhrif hefur á landið að Icelandair hefur fallið linnulítið á einkunnavefum á borð við Skytrax. Þetta flugfélag flýgur jú í Íslands nafni er ekki svo. Væri vitlaust ráð að setja lög á ömurlega þjónustu?




























