Pistlar

Um bætur vegna tafa á flugi

  30/10/2012No Comments

Ritstjórn Fararheill.is hefur fengið fjölda pósta frá ýmsum aðilum í kjölfar þess að við sögðum farþega sem verða fyrir löngum töfum í flugi eiga rétt á bótum.

Engin vafi leikur á því að farþegar sem verða fyrir miklum töfum í flugi eiga skýran rétt á bótum.

Margir þeirra sem samband hafa haft vilja meina að ritstjórn fari með fleipur í slíkum tilfellum og leggi rangt útfrá Evrópureglum þar að lútandi.

Við höfnum því alfarið. Farþegar eiga fullan og sannan rétt á bótum vegna tafa á flugi og ekki er lengra en vika síðan Evrópudómstóllinn staðfesti dóm sinn þessa efnis.

Þar segir óumdeilt að farþegar sem verða fyrir löngum töfum eigi sama rétt og þeir hvers flug er fellt niður. Upphæðin í slíkum tilfellum er milli 41 þúsund og upp í 66 þúsund krónur en hún veltur á lengd flugs.

En ekki taka okkar orð fyrir þessu. Skoðið þetta hér.

* miðað við miðgengi krónu gagnvart evru 30. október 2012.