Farþegar Wow Air munu ferðast um í mun nýrri vélum en verið hefur þegar fram líða stundir en félagið hefur gert samning um að skipta út eldri vélum fyrir nýlegum Airbus A-320 vélar. Fjórar slíkar verða í flugi fyrir Wow fyrir næsta sumar.

Sú fyrsta af fjórum ársgömlum Airbus vélum sem Wow Air hyggst taka í notkun er þegar tekin til starfa
Ein slík hefur þegar verið tekin í gagnið og aðrar þrjár taka til starfa í stað eldri véla í vetur fram á vor.
Allar vélarnar eru i eigu Avion Express eða sama félags og Wow Air hefur átt viðskipti við hingað til. Það félag er í eigu íslenskra aðila að mestu leyti.
Vélarnar eru bæði sparneytnari og þægilegri en þær vélar sem Wow hefur haft í þjónustu frá upphafi auk þess sem þær menga minna en þær eldri.
Sama sætisbil verður áfram og verið hefur en meðal farþega Wow var sérstaklega tiltekið mun meira sætispláss en til að mynda var í boði í vélum þeim er Iceland Express notaði.






