Fræðingar New York borgar telja að það geti tekið allt upp í heila viku að hreinsa og tæma jarðlestaganga borgarinnar eftir að nokkrar vindhviður sem fengu nafnið Sandy settu þar allt á flot í nótt. Það gerir það öllu flóknara fyrir ferðafólk að skoða sig um.

Neðri Manhattan í New York snemma í morgun var á kafi eftir Sandy. Marga daga mun taka að koma jarðlestakerfi borgarinnar í samt lag

Neðri Manhattan í New York snemma í morgun var á kafi eftir Sandy. Marga daga mun taka að koma jarðlestakerfi borgarinnar í samt lag

Sérstaklega er slæm staðan á Neðri-Manhattaneyju, Lower Manhattan, en þar hefur flotið allt sem flotið gæti og jarðgöng flest á bólakafi þar.

Ekki nægir þó að pumpa göngin þurr heldur þarf að hreinsa þau af rusli og öðru slíku auk þess sem kanna þarf í þaula hvort vatnsskemmdir hafi átt sér stað. Saltvatn er eitur fyrir ýmis þau tæki og tölvur sem notaðar eru til að jarðlestakerfið gangi smurt. Allt þetta tekur vart skemur en heila viku.

Jarðlest er langfljótlegasta og besta leiðin til að komast um í þessari miklu borg og því hætt við að ferðalangar á þessar slóðir verði að sætta sig við að komast yfir tiltölulega lítið af því sem áætlað var sé fólk á ferð til New York næstu daga.

Sömuleiðis er líklegt að umferð í borginni verði enn erfiðari en venjulega og leigubílar því ekki endilega góður kostur heldur.

Hafi fólk því verið það óheppið að eiga far til New York þessa vikunar er málið að slaka verulega á áætlunum sínum og njóta þá enn frekar færri staða og koma aftur síðar. Að reyna annað er ávísun á óþolinmæði og önnur slík leiðindi.