Ritstjórn Fararheill átti von á því að forráðamenn Wow Air myndu hækka verð sín í kjölfar yfirtöku þess félags á rekstri og vélum Iceland Express. En að hækka sérstakt og vafasamt bókunargjald úr 500 krónum í 900 kemur á óvart.
Það er reyndin en ekki liggur fyrir nákvæmlega hvenær félagið hækkaði þetta gjald sitt.
Eins og Fararheill hefur ítrekað fjallað um, er þetta eitt kjánalegasta gjald sem til er. Því er ætlað að greiða laun, eða hluta launa, þeirra starfsmanna sem þurfa að færa bókun til bókar jafnvel þó viðskiptavinir gera það allt sjálfir á netinu.
Kannski er starfsfólk Wow á súperlaunum en 900 krónur á hvern legg flugferðar er helvíti vel í lagt enda þarf Jón eða Jóna bókari varla meira en fimmtán sekúndur til að ganga endanlega frá hverri bókun viðskiptavinar ef þess þarf þá.
En ætli menn út og heim aftur kostar það nú aukalega 1.800 krónur.
Wow Air er fjarri því eitt um slíkt gjald. Icelandair tekur 500 króna gjald fyrir allar bókanir og Iceland Express áður en það var selt tók þúsund krónur aukalega á hvern legg ferðar eins og Fararheill gagnrýndi hér. Þá er slíkt gjald algengt hjá flugfélögum erlendis líka.
Þó má segja Wow Air til hróss í þessu tilfelli að ólíkt Iceland Express, áður en það félag var selt, og sömuleiðis Icelandair þá kemur bókunargjaldið fram strax og leitað er að fargjaldi. Það er semsagt ekki falið fram í lokahnykk bókunar eins og reyndin var og er hjá samkeppnisaðilunum.
UPPFÆRT: Samkvæmt upplýsingum frá Wow Air var umrædd bókunargjald hækkað í kjölfar þess að Iceland Express hækkaði sín bókunargjöld og gjaldskrárhækkunin tengist því ekki kaupum þess fyrrnefnda á því síðarnefnda.







