Flugfarþegar hugsa sig ekki tvisvar um ef valið stæði milli þess að vera nettengdur um borð í flugi eða hafa aðgang að góðu afþreyingarkerfi. Netið rúllar afþreyingarkerfinu auðveldlega.

Flugfélagið Emirates býður bæði upp á síma- og nettengingu um borð í sínum vélum en fólk er lítt hrifið af blaðri í síma um borð samkvæmt nýrri könnun.
Allavega samkvæmt niðurstöðum könnunar Skyscanner í Bretlandi sem forvitnaðist um þetta hjá þúsund flugfarþegum þar í landi.
Af þeim segjast tveir þriðju taka góða nettengingu framyfir úrval af sjónvarpsþáttum, kvikmyndum eða öðru efni sem aðgengilegt er alla jafna í afþreyingarkerfum farþegavéla.
Athygli vekur sérstaklega að farþegarnir segja að með neti gefist þeim færi að rabba við ættingja, vini og félaga gegnum fésbókina eða aðra slíka samfélagsmiðla auk þess sem úrval þess efnis sem hægt væri að ná í væri eðlilega snöggtum betri og fjölbreyttara en það sem afþreyingarkerfi geta boðið upp á.
Þá er einnig athyglisvert að svarendur eru hins vegar lítt hrifnir af því að vera símtengdir um borð. Aðeins 38 prósent lýstu áhuga á að geta verið í símasambandi í flugi. Stemmir þetta við aðrar kannanir sem Fararheill hefur greint frá og ljóst að flestir vilja losna við það ónæði sem oft getur verið af símum.






