Lífið er stutt og freistandi staðir allt of margir að mati okkar sem lifum og öndum fyrir ferðalög og líður illa í hjartanu ef ekki er ljúf brottför á framandi stað úti í heimi á nokkurra mánaða fresti.
Það er meira en að segja að njóta lífs og lystisemda ótt og títt á nýjum og forvitnilegum stöðum. Lífsbaráttan tekur toll, börnum þarf að sinna snemma, öldruðum foreldrum síðar og lífsgæðakapphlaupið í millitíðinni. Svo þarf vitaskuld að vera í vel launaðri vinnu ellegar vinna tvær til þrjár vinnur til að hafa efni á að ferðast vítt og breitt í viðbót við að hafa það bærilegt heimavið. Svo ekki sé minnst á fullan skilning makans á ævintýra- og ferðaþörf.
Margir gera þau mistök líka að bíða með draumaferðirnar sínar fram á efri ár. Það er auðvelt þegar engin eru efni á yngri árum að ákveða að ferðast duglega þegar börnin eru farin að heiman og nægur tími til stefnu. Raunveruleikinn á það þó til að slá alla slíka drauma út af borðinu þegar veikindi herja á eða elli kerling bankar fyrr að dyrum en búist var við. Það er jú öllu minna skemmtilegt að skoða heiminn í hjólastól, við staf, blind eða heyrnarlítil fyrir utan allt annað sem á okkur bitnar með tíð og tíma.
En sé lítill tími til stefnu ellegar langt frí framundan og enn svo margir draumastaðir sem ekki hefur gefist tækifæri að skoða er kannski sniðugt að slá tvær flugur í einu höggi. Bókstaflega.
Hin ástralska flug- og ferðaskrifstofa Flight Centre rekur útibú víða um heim og býður oft á tíðum upp á snilldarlausnir í ferðum. Eins og að bjóða flug langt út í heim en ekki til eins staðar heldur tveggja. Fyrirbærið kallast twin-centre og nýtur vaxandi vinsælda austanhafs og vestan. Enda verðið á slíkum ferðum æði gott.
Þetta haustið er til dæmis hægt að fljúga, frá Bretlandi, til Bangkok í Tælandi og Hanoi í Vietnam á einum og sama flugmiðanum fyrir 99 þúsund krónur á mann. Frábært verð vægast sagt miðað við það sem hefur verið í boði undanfarna mánuði.
Þykir Suðaustur-Asía ekkert heillandi er líka í boði að blanda saman Los Angeles og New York niður í 129 þúsund á mann. Cape Town og Johannesburg í Suður Afríku fyrir 136 þúsund krónur á haus eða Istanbúl og Dúbai fyrir hlægilegar 75 þúsund krónur.
Með slíka flugmiða í hendi er svo minnsta mál að finna allra lægstu verð á hótelum á bestu hótelbókunarvél heims á Fararheill.is. Kaupa svo flug á tilboði frá Íslandi og til og njóta svo í þaula án þess að vera sveitt yfir kostnaðinum.
Hér má finna hin tvöföldu flugtilboð Flight Centre á þessari stundu. Þau þarf að bóka fyrir 31. ágúst og þau þarf að bóka símleiðis. En mikil ósköp hvað það símtal getur borgað sig.








