Það kemur stöku sinnum fyrir að hlutir sem virðast of góðir til að vera sannir eru raunverulega sannir. Eins og að komast í vikulanga lúxussiglingu um karabíska hafið allt niður í 30 þúsund krónur á mann.

Lúxussiglingar á síðustu stundu eru oftar en ekki hræbillegar. Mynd S.Oney

Lúxussiglingar á síðustu stundu eru oftar en ekki hræbillegar. Mynd S.Oney

Neibb, gott fólk, þetta er ekki grín. Eins og við höfum sagt lesendum okkar frá áður er samkeppnin í ferðabransanum erlendis það mikil að þar þykir ekki tiltökumál að lækka verð á ferðum feitt og mikið eftir því sem nær dregur. Þetta gildir alls staðar í Evrópu og Bandaríkjunum og auðvitað hjá lúxusskipafélögunum líka.

Sem er ástæða þess að komist fólk um borð með litlum fyrirvara er hægt að verða sér úti um aldeilis frábæra díla.

Díla á borð við vikusiglingu frá Miami eftir tvær vikur til Mexíkó, Hondúras, Belíz og til baka niður í 29 þúsund krónur á mann miðað við tvo í innriklefa.

Nú eða vikupakka þar sem siglt er frá Miami til Bahamas, St.Thomas, Puerto Rico, Turks & Caicos og fleiri staðar í byrjun september niður í 28 þúsund krónur á mann miðað við tvo í innriklefa. Og allt eða flest innifalið eins og venjulega.

Auðvitað sökkar að vera í innriklefa á hafi þar sem meðalhitinn er 33 gráður nánast allan ársins hring og þó káetur með svölum finnist á sirka helmingi hærra verði en nefnt er hér að ofan er það nú samt á afar lágu verði miðað við allt og allt. Þá er hægt að sleikja sólina og skála við hlið elskhugans alla sjö dagana ef út í það er farið. Það er nefninlega fátt, að okkar mati, betra til að kveikja neista í kulnuðum glæðum en klefi með svölum á lúxusskipi. Mun betra en hanga í margra vikna þerapíu hjá einhverjum hafnfirskum presti allavega.

Þá er það lokaspurningin sem eflaust brennur á þér. Hvernig eigum við Frónbúar að komast í þessi feitu tilboð?

Svarið veltur á hversu ævintýraþyrst þú og þið eruð. Í þessum tilfellum eru tvö trix sem kunna þarf skil á. Annars vegar að bóka og borga flug fram og aftur til Orlando með góðum fyrirvara. Þannig fæst flugið niður undir hundrað þúsund krónur á mann. Til dæmis að bóka og greiða flug til Orlando í janúar eða febrúar strax núna í ágúst.

Næsta skref getur reynst erfitt en það er að bóka aðeins gistingu, á hóteli eða leiguhúsnæði, fyrstu tvo til þrjá dagana sem þið eruð á Flórída. Í raun ekkert erfitt en margir óttast að vera útigangsmenn ef ekki er geirnegld gisting allan tímann. Það er óþarfi. Ef einhvers staðar á jarðarkringlunni er allt of mikið af gistingu er það á Flórída. Þeir sem skoða hótelleitarvél Fararheill finna undir eins að nokkrar nætur á hóteli hér ekki að setja neinn á höfuðið. Öðru nær. Hér finnst ágæt gisting með litlum eða engum fyrirvara niður í fimm þúsund krónur hvort sem leitað er í Orlando, Fort Lauderdale eða Miami.

Eftir að fólk er komið út og með þak yfir haus er farið beint í tölvuna, á kvöldin eftir að skyggja tekur, og legið yfir tilboðssíðum sem sérhæfa sig í siglingum innan þess tíma sem þú ert í Flórída. Þær eru allnokkrar en ein sérstaklega fín er Onboard.com þar sem ofangreind tilboð finnast þegar þetta er skrifað. Finnir þú siglingu við hæfi bókar þú í hvínandi hvelli og kemst þannig í arfaslaka og ljúfa siglingu fyrir lágmarksverð. Mögulega bætist við kostnaður við að komast til Fort Lauderdale eða Miami en það er minnsta málið. Bæði eru rútur í boði, bílaleigubílar ellegar skutlur margs konar. Nægir oftast að forvitnast á hótelinu og ef fagmannlegt fólk er að vinna þar fær fólk fínar upplýsingar um bestu og ódýrustu leiðina hingað og þangað.

Engar áhyggjur af því að finna svo gistingu þegar í höfn er komið aftur. Þjónustuaðilar um borð eru meira en lítið hjálpsamir ef tryggja þarf gistingu um leið og komið er til lands og ekki má heldur gleyma að netsamband er um borð ef tölva er með í för. Þannig má tryggja gistingu í daga eða jafnvel vikur eftir að siglingu lýkur.

Jafnvel þó kostnaður við gistingu hlaupi yfir hundrað þúsund krónur ert þú samt sem áður að spara drjúgar upphæðir en ef fólk bókar siglingar heima hjá ferðaskrifstofunum. Ódýrasta sigling sem Úrval Útsýn býður til að mynda er reyndar tveggja vikna löng en kostnaðurinn tæpar sjö hundruð þúsund krónur í innriklefa.

Með okkar hætti siglir þú í viku og eyðir viku á landi í dúlleríi og kostnaður í heildina vart yfir 400 þúsund á parið. Eini gallinn við þessa aðferð er að það þarf dálítið að þora og kunna á netið en ekki hafa áhyggjur af því að finna svo alls enga siglingu við hæfi. Það eru hundruð skipa að flakka um Karíbahafið alla daga vikunnar og sigling mun finnast jafnvel þó verðið sé hærra og sparaðurinn minni.

Ekki feimin að hafa samband ef frekari spurningar.