Við vitum ekki um ykkur þarna úti en við hjá Fararheill blásum ekkert í blöðrur yfir vetrarmánuðunum á Íslandi. Hvernig væri nú að stökkva í ferð til Algarve þegar kuldaboli er hvað leiðinlegastur hér heima og það fyrir verð sem er hreinn brandari?

Það fer kannski enginn í sjóinn við Portúgal í nóvember en þar eru íslenskir sumarhitar engu að síður. Mynd Paulo Valdiviesco
Bresk ferðaskrifstofa er að selja vetrarpakka til Algarve í Portúgal, þar sem meðalhiti í nóvember er sextán gráður og ekki undir tólf gráðum sem hljómar ískyggilega eins og ágætt sumarveður á misfarsæla Fróni. Fararheill hefur reiknað út að grípi fólk gæs strax plús það að kaupa flug nú þegar með annaðhvort easyJet eða Flybe er komist í vikupakkann í nóvember næstkomandi á ljúfri Algarve undir 50 þúsund krónum á haus.
Þetta er ekkert skítatilboð heldur þó verð sé lágt. Þvert á móti er gist í hreint ágætum hótelíbúðum og morgunverður fylgir með í kaupbæti. Ekki sakar heldur að tilboðið nær til tólf borga á Bretlandseyjum og þar á meðal bæði Birmingham og Bristol en þangað fljúga lággjaldaflugfélögin easyJet og Flybe beint héðan fyrir slikk. Við finnum, þegar þetta er skrifað, far fram og aftur til Birmingham með Flybe niður í 29 þúsund krónur á tíma sem stemmir við tilboðsferðina til Algarve í nóvember.
Þetta er gæðatilboð og hægt að dvelja í borgunum tveimum lengur ef vilji er til en koma svo heim með hita í kroppi og reiðubúin að takast á við hinn eiturskemmtilega desember hér heima. Kjósi fólk að dvelja tvær vikur er kostnaðurinn aðeins 66 þúsund miðað við gengi dagsins og fargjöld í boði kl. 19 þann sextánda ágúst.
Tilboðið hér og svo gildir að græja flugið fram og aftur strax. Gæta skal þess að bóka flugið til Bretlands fyrst svo allt fari nú ekki í klessu 🙂
Njótið vel!







