Fararheill fær ítrekað póst frá fólki sem langar að komast til Kúbu og njóta þess sem sú eyja býður upp á en finnst helst til mikið að greiða fyrir heila eða hálfa milljón króna eins og þörf er á ætli fólk með innlendum ferðaskrifstofum.

Strandlengjan við Malecon í Havana. Nú styttist í að sú verði undirlögð af Bandaríkjamönnum. Mynd Howard Ignatius
Mikið rétt er að það kostar feitan pening að panta hérlendis. Ein Kúbuferð er áætluð eftir tæpan mánuð hjá ferðaskrifstofunni Vita. Þar um vikudvöl að ræða og hægt að skipta milli Havana og Varadero. Kostnaður við þá vikudvöl fyrir par um sex hundruð þúsund krónur alls eða 86 þúsund krónur hver einasti dagur. Flugið heldur ekki beint eins og af er látið því millilent er í Halifax á leiðinni út og heim.
Til Kúbu er þó vel komist langt undir því verði og það jafnvel í tvær vikur um páskana ef því er að skipta.
Það gerist með að panta flug með Icelandair til Toronto í Kanada 29.mars til 17.apríl. Það kostar þegar þetta er skrifað 89.665 krónur á mann eða 179.330 krónur fyrir parið. Að því loknu skjótumst við á vef kanadísku ferðaskrifstofunnar Itravel2000. Þeir oft með Kúbutilboð en því miður yfirleitt oftast aðeins vikulangar ferðir og það er fráleitt fyrir svo langt flug. Fólk rétt komið í stuttbuxurnar þegar komið er að heimferð á ný.
Við kjósum ekkert minna en tvær vikur og það þráðbeint yfir páskahátíðina og við viljum ekkert Benidorm sull á Varadero heldur. Við ætlum okkur að hanga kyrfilega í Havana. Þá er ýmislegt í boði en lægsta verð finnst á fjögurra stjörnu Occidental Montehabana frá 30.mars til 13.apríl fyrir 1.800 kanadíska dollara sem þýðir svo mikið sem 191 þúsund krónur á parið í íslenskri mynt. Reyndar enginn matur innifalinn en hægt að kaupa það aukalega ef vill.
Voilà! Hjónakornin komin í páskastemmarann í Havana undir glamandi sól og merengue-takti fyrir rétt rúmar 370 þúsund krónur. Reyndar enginn matur innifalinn en hægt að kaupa það aukalega ef vill.
En hér með lýkur ekki sögunni. Við gáfum okkur að auki fjóra daga eða svo í Toronto og fyrir því þrjár ástæður. Annars vegar er þetta sallafín borg að heimsækja og synd að storma á brott í flýti. Í öðru lagi er alltaf góð regla að gefa sér að minnsta kosti sólarhring milli ferða þegar ferðast er á eigin vegum. Þá er nánast útilokað að tafir setji stórt strik í reikninginn. Í þriðja lagi hefur líka áhrif að fargjald Icelandair heim strax að lokinni Kúbuferð er töluvert hærra en sé farið heim þann 17.
Á hótelbókunarvef okkar finnum við allnokkur þriggja til fjögurra stjörnu hótel miðsvæðis í borginni í fjóra sólarhringa milli 25 og 30 þúsund krónur. Sem er nokkurn veginn sá kostnaður sem það kostaði aukalega í flug hefðum við bókað flug heim þann 14. apríl. Það má því hugsa sér að verið sé að gista „frítt“ í Toronto.
Um að gera að fikta sig áfram með slíkt. Sé litið lengra fram í tímann er hægt að finna flug með Icelandair niður í 70 þúsund á mann og sömuleiðis þarf ekkert að valsa til Kúbu yfir páskana. Kíkið á vef Itravel2000 og sjáið hvað er á boðstólnum. Við eigum ennþá 200 þúsund í vasanum versus að fara með Vita í febrúar í vikuferð.
Pakkinn hér og hótelvél okkar hér að neðan. Gangi ykkur vel. Munið að vegabréfsáritun þarf til Kúbu og sömuleiðis kostar 25 CUC að yfirgefa Kúbu aftur. Nánar má lesa sér til um Havana hér.







