Markaðsmenn ferðaskrifstofunnar Vita eru að láta stórt tækifæri sleppa úr höndum. Vinsæll hjónabandsráðgjafi er nefninlega leiðsögumaður í einni siglingu sem fyrirtækið er að bjóða upp á og hver pungar ekki út fyrir slíkri ferð ef innifalin er aðstoð til að kveikja gamlan neista?

Efsta dekk Celebrity Constellation þar sem fáklætt fólk buslar,dansar og djammar við hvert tækifæri.
Það er eitthvað rólegt að gera í að messa yfir fólki því séra Þórhallur Heimisson er að lóðsa fólk um fyrir ferðaskrifstofuna Vita að hluta í sumar. Hann fer fyrir ágætri fjórtán daga ferð/siglingu milli Tyrklands, Grikklands og Króatíu og heldur fólki félagsskap.
Verð á þessari ferð ekki alveg í takti við íslenskan launþegaveruleika því hún kostar 880 þúsund krónur á par í gluggaklefa. Sem sagt mánaðarlaun beggja aðila ef um Jón og Gunnu Meðal er að ræða.
Reyndar fer milli mála hvurn andskotann sérann er að gera í þessari ferð. Það er jú tiltekið í smáa letri Vita að „engar skoðunarferðir á áfangastöðum skipsins séu innifaldar.“ Sem hlýtur að þýða að greiða verður aukalega fyrir og þá kannski pakkinn farinn að slefa í eina milljón króna? Presturinn hlýtur þá að vera bara á vappinu um skipið og kannski gefur góð ráð við heita pottinn.
Burtséð frá því finnst okkur hjá Fararheill ekki ganga að heimta svona marga peninga fyrir herlegheitin. Jafnvel þó hans heilagleiki sé með í för. Leyfum milljóna króna fólkinu að eiga þetta skuldlaust meðan við hin förum sömu ferð á öllu lægra verði og brosum svo blítt á skipsfjöl í september.
Það gerum við með því að bóka flug með Wow Air, easyJet eða Icelandair fram og aftur til London í september. Gerum ráð fyrir að flugið þangað kosta parið kringum 50 þúsund krónur eða svo. Að því loknu flettum við upp á vef bresku ferðaskrifstofunnar Cruise Nation, finnum þar sömu ferð og Vita er að bjóða með Guðsmanninum og bókum med det samme. Þar kostar ferðin góða í klefa með útsýni nefninlega ekki nema 289 þúsund krónur á mann eða 578 þúsund krónur á parið.
Hendum þessu tvennu saman og hjón eða par dúlla sér í sömu ferð og farþegar Vita fyrir tæpar 630 þúsund krónur. Tæplega 300 þúsund krónum lægra verð en engu meiri fyrirhöfn því farþegar Vita verða líka að millilenda í sinni ferð en reyndar í Kaupmannahöfn.
Svo bara spyrja fararstjóra Vita spjörunum úr ef kuldi er í sambandi. Guðsmaður getur jú ekki neitað fólki um aðstoð 😉







