Þú þraukaðir koldimman janúar, kafaldsbyl dag eftir dag í febrúar og vindabarningur í mars setti þig heldur ekki út af laginu. En í aprílbyrjun ertu aðframkomin. Þú gæfir aleiguna og eiginmanninn með fyrir fimm mínútur af sól og hita.

Þetta sleppur 🙂 Strönd Khao Lak í Tælandi
Góðu heilli þarftu hvorki að gefa aleiguna né eiginmanninn. Það er nefninlega hægt að komast afar billega í þetta eðalfína strandahopp í Tælandi á þessum tíma. Sama Tælandi og þar sem hitastigið er 30 gráður daginn út og daginn inn hvort sem það er desember eða júlí og sjórinn svo volgur að þú vilt aldrei koma upp úr. Fyrir utan náttúrlega hvað allt er hér ódýrt.
Sem sagt tómir plúsar og ekki fara 250 þúsund krónur mikið með þig á vanskilaskrá heldur. Það fáránlega lágt verð fyrir ferð frá Bretlandi til Tælands þar sem gist er á tveimur verulega flottum ströndum, Khao Lak og Kara á Phuket, í ágætum fimm stjörnu lúxushótelum. Og jú, við tókum inn í þetta kostnaðinn við flug héðan til London og heim aftur 🙂
Tilboð þetta er í boði á vef Secret Escapes þegar þetta er skrifað og þó pakkinn sé í boði alla næstu mánuði er verðið lægst í lok mars og byrjun apríl. Nokkrir seðlar í viðbót og sama ferð er þín í janúar eða febrúar.







