Hvers vegna eyðir Flugfélag Íslands hundruð þúsunda króna í að styrkja jólatónleika einnar poppstjörnu í stað þess að einbeita sér að því að lækka flugfargjöld fyrir þorra almennings?

Dyggur stuðningsaðili jólatónleika Siggu Beinteins er.... Flugfélag Íslands.

Dyggur stuðningsaðili jólatónleika Siggu Beinteins er…. Flugfélag Íslands.

Eins og fjallað hefur verið um á þessum vef og víða annars staðar eru flugfargjöld innanlands með Flugfélagi Íslands því sem næst lúxusvara miðað við verðlagninguna. Ekki er langt síðan úttekt Fararheill leiddi í ljós að hvergi á byggðu evrópsku bóli kostar jafn mikið að fljúga innanlands en hér á klakanum. Ekki er heldur langt síðan önnur úttekt okkar sýndi fram á að skattar og gjöld, það sem Flugfélagsmenn segja koma í veg fyrir lækkun fargjalda, eru ívið lægri hér á landi en annars staðar.

Ágætt dæmi um þetta má finna hjá nágrannaríkinu Noregi. Algengt verð á flugi aðra leið milli Osló og Bergen með tösku eru tólf þúsund krónur. Flugið tekur 55 mínútur. Algengt verð á flugi með tösku milli Reykjavíkur og Egilsstaða, sem tekur 55 til 60 mínútur: átján til nítján þúsund krónur. Báðar leiðir innanlands skjaga hátt í 40 þúsund krónur. Sem er á pari við fram og aftur flug með Wow Air alla leið til Tenerife.

Kannski væri hægt að lækka þennan mikla kostnað ef fyrirtækið hætti nú að styrkja jólatónleika poppstjörnu og aðra kjánalega viðburði.