B ahamas, Cayman-eyjur, Kúba, Jamaíka, Puerto Rico, Dóminíska lýðveldið, Turks & Caicos, Aruba, Antigua, Martinique, Jómfrúreyjur….

Ólíkt betri strendur en við Miðjarðarhafið finnast í Karíbahafinu en þangað líka töluvert kostnaðarsamt að komast. Mynd Nick Kenrick
Hann er æði langur listinn yfir allar þessar stórkostlegu eyjur Karíbahafs sem svo mjög heilla flesta lifandi menn og engin furða að jafnvel djúp efnahagskreppa í Evrópu og Bandaríkjunum hafði næsta engin áhrif á gestakomur til eyjanna. Þangað fer fólk hvað sem tautar og raular.
Það er þó enginn hægðarleikur fyrir okkur Íslendinga að njóta þar um slóðir. Hending er ef í boði eru ferðir héðan. Helst stöku sérferðir til Kúbu eða Dóminíska en þá er það upptalið. Þær ferðir oftast æði þungar á pyngju og fjögurra manna fjölskylda sleppur mjög vel ef reikningur fyrir slíka ferð helst undir einni milljón króna.
En er hægt að busla í karabísku flæðarmáli á ódýran hátt? Hvernig þá?
Það veltur aðeins á því hvað fólk kallar ódýrt og hvað ekki. Kannski hvað einfaldasta leiðin er að skoða þau flugfélög vestanhafs sem fljúga frá stöðum sem flogið er til héðan. Það þýðir að við þurfum fyrst að koma okkur til staða á borð við Orlando, Denver, Toronto, New York eða Boston og fljúga áfram þaðan.
Frá öllum þessum stöðum er eitt eða fleiri flugfélög að bjóða ferðir til hinna og þessara eyja í karabíska. Frá Denver býður Frontier Airlines upp á beint flug til Dóminíkanska, Puerto Rico og Jamaíka. Lægsta verð aðra leiðina til Dóminíkanska þaðan fæst kringum 40 þúsund krónur. Frá New York og Orlando er í boði að fljúga með JetBlue til fjölmargra eyja og nú í vetur bætist við beint flug til hinnar dásamlegu St.Lucia. Önnur leið með þeim fæst lægst niður í 24 þúsund krónur.
Þriðji góði kosturinn er að brúka kanadíska lággjaldaflugfélagið Westjet en þeir fljúga frá allnokkrum borgum Kanada til fjölda eyja í karabíska. Sé Kúba efst á óskalistanum er þetta einn af fáum möguleikum meðan Bandaríkjamenn leyfa ekki beint flug frá Bandaríkjunum. Sem dæmi um fargjöld Westjet má nefna að flug aðra leið frá Toronto til Jamaíka kostar lægst 26 þúsund krónur.
Með öðrum orðum má segja að það er illa hægt að koma sér og sínum til Karíbahafs án þess að leggja vel út fyrir. Ekki hvað síst þegar flugfargjöld vestur um haf eru orðin jafn dýr og raun ber vitni.
Það er til ein leið enn sem er að koma sér yfir til Evrópu og fljúga þaðan í skipulögðum pakkaferðum. Það auðvitað ekki ferð á eigin vegum en oft vill það vera ódýrasta leiðin til að spóka sig undir karabískri sól. Virgin Airlines er á stundum að bjóða afar fín pakkatilboð til hinna ýmsu staða og ferðaskrifstofur margar erlendis lækka gjarnan verð á ferð þegar stutt er í brottför. Lægsta verð til karabíska hafsins sem ritstjórn hér hefur rekist á var sjö nátta ferð til Jamaíka þar sem túrinn kostaði mann aðeins 118 þúsund krónur. En til að grípa það hafði fólk aðeins þrjá daga til að skjótast til London og eins og flestir vita eru flugfargjöld héðan með litlum fyrirvara dýr.
Ódýr verður ferð til Karíbahafs því seint eins og staðan er. Sem er mikil synd.




