Næstu þrjár vikurnar er hægt að komast með Iceland Express til Barcelóna á Spáni fyrir réttar 20.700 krónur. Þar er réttilega enn nóg af hita og sól fyrir kalda kroppa fyrir utan að borgin er ein sú skemmtilegasta í Evrópu allri.

Það er ekkert sem kemur í veg fyrir dúllerí í Barcelóna vel fram í október þó hitastig sjávar fari lækkandi.
Að þessu sinni er tilboð Iceland Express ekki takmarkað við sérstakan tíma og helgast það af því að fyrirtækið hættir reglulegu flugi sínu til borgarinnar í næsta mánuði. Er síðasti brottfarardagur héðan þann 8.október samkvæmt heimasíðunni. Þó er sætafjöldi á þessu verði takmarkaður sem fyrr.
Vart þarf að eyða púðri í kynningu á borginni sjálfri. Hún er æðisleg með stóru Æ-i og tonn af skemmtunum og upplífelsi fari svo að einhver fái sig fullsaddan af stórkostlegu andrúmsloftinu einu saman. Allt um Barcelóna.
Eini einasti gallinn á þessum ferðum Iceland Express, og ekki einskorðað við þessi flug, er sú staðreynd að ekki er lent í borginni fyrr en upp úr miðnætti og sömuleiðis er heimflug aðeins í boði eftir miðnætti. Það þýðir að gestir verða að ná samkomulagi við gististað sinn um að geyma farangur hálfan dag eða svo nema fólk nenni að druslast með föggur sínar í tólf tíma eða svo áður en haldið er heim.







