Þurfi einhver bráðnauðsynlega á utanlandsferð að halda og það helst ekki síðar en strax gæti viðkomandi kannski fundið eitthvað við hæfi í tilboðspotti Heimsferða. Sá óvenju troðinn miðað við árstíma.

Forföll eða tregleg sala skal ósagt látið. Nóg í boði á tilboðsverði hjá Heimsferðum
Róm, Salou, Barcelóna, Tenerife og svo má áfram telja þær ferðir sem til sölu eru á tilboðsverði hjá Heimsferðum í þessum skrifuðu. Að hluta til um forfallaferðir að ræða og brottför með skömmum fyrirvara en er það ekki einmitt málið þegar sumarið heilsar með með sama skítakulda og veturinn kvaddi með?







