Það vita þeir sem heimsótt hafa Toronto í Kanada að það getur tekið tímann sinn að taka bíl frá flugvelli að hóteli eða þá leið til baka. Umferðarteppur á leiðinni algengar og hafa verið lengi og engin önnur leið til eða frá. Þangað til nú.

Union stöð í Toronto. Héðan hægt að fara beint á flugvöllinn frá og með júnímánuði. Mynd Neil Howard

Union stöð í Toronto. Héðan hægt að fara beint á flugvöllinn frá og með júnímánuði. Mynd Neil Howard

Frá og með júní verður hægt að hoppa um borð í lest sem flytur fólk rakleiðis að Union stöðinni í miðborginni. Sú er í göngufæri frá fjölmörgum hótelum sé fólk að ferðast létt en annars eru leigubílar hér um allt.

Ekki er þó alveg frítt að skrölta um í nútímalegri lestinni. Fargjaldið er rétt rúmar þrjú þúsund krónur aðra leiðina og túrinn hvora leið um sig tekur allt að 25 mínútum. Ekki endilega mikið lægra verð en að grípa næsta leigubíl ef fleiri en einn eru um hituna en þá er líka hættan fyrir hendi að lenda í traffík og það bæði leiðinlegt og dýrt.