Flugfélagið Emirates hefur slegið 25 prósent af fargjöldum frá London til valinna áfangastaða í Asíu, Afríku og Ástralíu. Sem dæmi má nú komast fram og aftur til Bangkok í Tælandi fyrir 82 þúsund krónur.

Áhuga á langferðum? Þá er mál að kíkja á tilboðsvef Emirates
Það er skrambi gott verð á löngu flugi með topp flugfélagi og sjálfsagt að skoða það ef Tæland er á listanum yfir staði sem eftir er að heimsækja. Kannski hjálpar aðeins að skoða vegvísi Fararheill um borgina líka.
En tilboðin einskorðast ekki við Tæland. Flug til Jakarta í Indónesíu líka á sértilboði og sömuleiðis líka flug til Adeleide og Perth og áfangastaðir í Afríku líka.







