Með tilliti til að annar hver karlmaður virðist hafa gerst sekur um kynferðislega áreitni samkvæmt #metoo bylgjunni er alveg þjóðráð hjá ferðarisanum Tripadvisor að tiltaka sérstaklega þau hótel eða gististaði þar sem kynferðisbrot hafa átt sér stað. En fyrirtækið gerir það afskaplega illa.

Dapurt prógramm 🙁

Fáir hafa kannski veitt því eftirtekt, enda bóka fáir Íslendingar gistingu gegnum Tripadvisor, en ferðarisinn hefur nýlega sett upp sérstakan rauðan borða á þeim gististöðum þar sem kynferðisbrot hafa átt sér stað.

Virkilega flott framtak nema ef vera skyldi fyrir froðulega viðvörunina sem sjá má hér að ofan. Gróflega þýtt segir hér að „Tripadvisor hafi orðið þess áskynja að einkunnir viðkomandi gististaðar taki ekki mið  af fregnum úr fjölmiðlum eða annars staðar frá. Áhugasamir ættu því að leita af sér allan grun um viðkomandi gististað með sérstakri netleit.“

Þetta er stínker lélegt stöff. Í stað þess að tiltaka sérstaklega hvað verið sé að fara eða vísa beint á frétt um viðkomandi hótel kýs ferðarisinn að benda fólki að skoða sjálft sérstaklega utanaðkomandi fregnir um hótelið eða gististaðinn. Í ljós kemur við gúggl að á þeim hótelum og gististöðum þar sem merkið atarna finnst hafa undantekningarlítið verið framin kynferðisbrot og í tilfellum enn alvarlegri glæpir eins og morð.

En Tripadvisor vill ekki segja okkur það beint. Neibb, þessi upplýsingaaðili vill að við verðum okkur úti um upplýsingar annars staðar um gististað sem við viljum bóka gegnum Tripadvisor.

Hallærislegt í meira lagi þó hugmyndin sé fyrirtak.