Tíðindi

TripAdvisor í hótelslaginn

  27/03/2012janúar 9th, 2015No Comments

Þeir sem ferðast á eigin spýtur um veröldina geta bætt enn einni hótelbókunarvélinni í flipasafn sitt á tölvunni. Ferðavefsrisinn Tripadvisor hefur nú opnað sinn eigin hótelbókunarvef undir nafninu Tingo og þar er lofað endurgreiðslu lækki verð á hótelherbergi eftir að bókun hefur verið staðfest.

Halda mætti að þéna megi tonn af seðlum á því að reka hótelbókunarvefi á netinu miðað við fjölda slíkra vefmiðla. Er reyndar fjöldinn orðinn of mikill því enginn einstaklingur hefur tíma til að liggja heilu næturnar yfir þeim tugum eða hundruðum slíkra síðna sem allar segjast bjóða bestu verðin á bestu hótelum og gististöðum.

Tingo.com er frábrugðinn þeim öllum því enginn hefur áður boðið beina endurgreiðslu lækki verð á hótelherbergi eftir að bókun er gerð en slíkt er nefninlega algengt. Reyndar mjög algengt því hvert og eitt hótel heims breytir verði mjög reglulega eftir eftirspurn hverju sinni og það jafnvel oft á viku. Sést þetta best á vef Tingo þar sem neðst til hægri má sjá verðbreytingar hjá hótelunum í nokkrum borgum heims.

Þar kemur til að mynda fram, þegar þetta er skrifað, að tæplega 500 hótel í París einni saman hafa lækkað verð á gistingu síðustu 30 dagana.

Sjálfsagt er því að merkja við Tingo.com enda vart hægt að gera betur en þeir bjóða þó reyndar eigi eftir að koma í ljós hvort þeir geta endilega boðið best verð. Það eru nefninlega fjölmörg hótel með sérsamninga við ákveðnar hótelbókunarkeðjur og annars staðar koma sértilboð hvergi fram.