Líklega er frekar óspennandi lífsreynsla að sitja sallarólegur í sæti sínu í 35 þúsund feta hæð þegar sjálfur flugstjóri vélarinnar æðir fram á gang með látum og hótar að sprengja sína eigin vél. Það gerðist í háloftunum fyrir ofan Texas í Bandaríkjunum í dag.
Þurftu farþegar vélarinnar að gjöra svo vel að ráða niðurlögum flugstjórans sem virðist hafa tapað glórunni skyndilega í vél flugfélagsins JetBlue á leið frá New York til Las Vegas. Þykir kaldhæðnislegt að farþegarnir flestir voru á leið á öryggisráðstefnu í Vegas.
Samkvæmt AP fréttastofunni fór flugstjórinn á klósettið og kom eldrauður út aftur. „Írak, Al Qaida, hryðjuverk, við eigum öll eftir að hrapa,“ kallaði hann og lét illum látum. Skipti engum togum að milli sex og tíu farþegar réðust á flugstjórann og yfirbuguðu hann eftir lítil átök. Kemur reyndar fram á öðrum fréttamiðlum að flugstjórinn hafi verið á fleygiferð inn í flugstjórnarklefann þegar farþegarnir náðu að stöðva hann.
Vélin lenti í borginni Amarillo í Texas skömmu síðar en til happs þótti að um borð var flugmaður í fríi sem aðstoðaði flugmann vélarinnar.
Var atvikið kvikmyndað að hluta og má sjá það hér að neðan.






