Evrópa er skemmtilegasta heimsálfan til ferðalaga að mati flestra sem þátt tóku í nýrri könnun Fararheill. Asía á þó mest upp á pallborðið hjá næstum jafn mörgum.
Ekki þarf að fara mikið í grafgötur með áhuga Íslendinga á ferðalögum en kannski kemur einhverjum spánskt fyrir sjónir að nánast jafnmargir telji Asíu og Evrópu skemmtilegasta heimsóknar. Það er jú öllu meira vesen að heimsækja Asíu en Evrópu enda engin bein flug þangað héðan og hafa í raun aldrei verið. En kannski er það líka ástæðan.
Alls tóku 523 aðilar þátt í þessari könnun Fararheill.is þar sem spurt var hvaða heimsálfa Íslendingum þætti mest spennandi til ferðalaga. Af þeim sögðu 31 prósent, 162, að Evrópa væri klárlega skemmtilegasti kosturinn meðan 29 prósent þátttakenda, 151 aðili, sögðu það vera Asíu.
Þriðja vinsælasta heimsálfan til ferðalaga þótti vera Suður Ameríka en 13 prósent sögðu hana heilla allra mest. Litlu færri, 11 prósent, heilluðust mest af Afríku og ferðalögum um þá miklu heimsálfu meðan Norður Ameríka fékk aðeins 9 prósent atkvæða. Þá vildu að auki 7 prósent helst þvælast um Mið-Austurlönd sem reyndar er þó ekki heimsálfa í neinni merkingu.
Ritstjórn hefur lengi gagnrýnt bæði ferðaskrifstofurnar og flugfélögin fyrir að bjóða ekki upp á fjölbreyttara úrval ferða héðan og þessi niðurstaða sýnir svart á hvítu að ritstjórn er ekki ein um þá skoðun. Samanlagt fá Norður Ameríka og Evrópa, þær heimsálfur sem alla jafna eru í boði héðan, aðeins atkvæði 40 prósenta þeirra sem þátt tóku meðan 60 prósent vilja annað og lengra.
Tekið skal fram að könnun þessi er ekki vísindaleg á neinn hátt en gefur þó skýrar vísbendingar. Ritstjórn þakkar öllum sem gáfu sér tíma til að taka þátt og bendir á nýja könnun á vefnum.