Hámarksgæði og hagstæðasta verð. Svo hljóma auglýsingar ferðaskrifstofunnar Úrval Útsýn um allar þeirra ferðir. Sem auðvitað er argasta vitleysa. Íslensk ferðaskrifstofa getur hvorki tryggt hámarksgæði né hagstæðasta verð.

„Hámarksgæðin“ a einu hótela Úrval Útsýn í Glasgow. Skítur og viðbjóður um allt. Mynd af Facebook

„Hámarksgæðin“ a einu hótela Úrval Útsýn í Glasgow. Skítur og viðbjóður um allt. Mynd af Facebook

Sök sér að sveifla um sig stórum lýsingarorðum í auglýsingum. Fæstir Íslendingar gera mikið vesen almennt jafnvel þó ferðir séu ekki alveg á pari við það sem lofað er. Það er hending ef Íslendingar leita réttar síns vegna tafa, seinkana eða niðurfellinga flugs og kærur á hendur ferðaskrifstofunum almennt mjög fáar líka.

En það er eitt að lofa hlutum upp í ermi en allt annað að hundsa líka þá örfáu viðskiptavini sem þó láta í sér heyra og sætta sig ekki við hlutina. Eins og neðangreint dæmi ber með sér en þessu var deilt nýlega á Facebook. Í þessu tilfelli er um hreina og klára bótaskyldu að ræða en fólk verður auðvitað að ganga á eftir hlutunum.

Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn gerir sig út fyrir að bjóða ferðir þar sem hámarksgæði og þjónusta fara saman við hagstæðasta verð hverju sinni eins og kemur fram á heimasíðu þeirra.

Með það að leiðarljósi keyptum við af þeim helgarferð til Glasgow á hótel Alexander Thomsson sem ferðaskrifstofan gaf umsögn að um væri að ræða mjög gott þriggja stjörnu hótel.

Þegar á hótelið var komið fengum við ekki herbergið strax svo við settum töskur í töskuherbergi og skottuðumst í bæinn að versla. Hentust svo seinnipartinn upp á hótel og tókum við herberginu. Þegar það var opnað tók á móti okkur hrikalega vond lykt, við pældum ekkert i þvi reiknuðum með að gluggar hefði ekki verið opnaðir í einhvern tíma, hendum pokum og töskum inn og héldum aftur í bæinn með það að við yrðum að muna eftir að kaupa lyktareyði sem við og gerðum

Búðir opnar til 19 svo eftir það var haldið upp á hótel, byrjuðum á að úða lyktareyði um allt herbergi sem hafði ekkert í þessa lykt og lofta út og drottinn minn dýri hvað herbergið var ógeðslegt, hef aldrei upplifað annan eins viðbjóð á hótelherbergi.

Í lögum um alferðir segir:

„Ef alferð hefur ekki staðist væntingar er hægt að kvarta við ferðaskrifstofuna á meðan á ferðinni stendur og gefa henni kost á úrbótum. Náist ekki sættir við ferðaskrifstofu sem er í Samtökum ferðaþjónustunnar er hægt að snúa sér til úrskurðarnefndar Samtaka ferðaþjónustunnar og Neytendasamtakanna en nefndin er vistuð hjá Neytendasamtökunum.“

Við fórum inn á heimasíðu ferðaskrifstofunnar (í gegnum símana okkar því ofan á allt annað var ekki net inn á herbergjum eins og hótelið auglýsir) til að finna símanúmer sem hægt væri að hringja í starfsmenn eftir að skrifstofan lokar til að fá annað hótel. Farþegum ferðaskrifstofunnar er ekki gefin kostur á að ná í starfsmenn utan opnunartíma skrifstofu þrátt fyrir að í lögum standi að hægt eigi að kvarta við ferðaskrifstofuna á meðan ferð stendur.
Fundum ekkert númer sem hægt væri að hringja í. Svo við tókum þá ákvörðun að vera sem minnst í herberginu þessa helgi til að stofna heilsu okkar ekki í hættu því ekkert við herbergið sagði okkur að önnur herbergi á þessu hóteli væri eitthvað betri sem kom á daginn þegar við ræddum við aðra gesti sem höfðu sömu sögu að segja.

Það var 9 tíma seinkun á flugi heim, ferðaskrifstofan lét okkur ekki vita af þessari seinkun og héldu því fram að engin tilkynning hefði borist þeim um seinkunina. Ég fékk staðfestingu frá Icelandair að tilkynning um seinkunina var send með sms í símanúmer sem fylgdi með bókuninni frá Úrval Útsýn svo við máttum hanga á flugvellinum í 11.5 klukkutíma fyrir það eitt að því er virðist að starfsfólk Úrval Útsýn hafði ekki fyrir því að láta okkur vita.

Ferðaskrifstofan vísar frá sér allri ábyrgð á því að hafa selt okkur gistingu í herbergi sem hefði svo sannarlega getað stefnd heilsu okkar í hættu vegna óþrifnaðar og hangir á því að við gerðum ekki kröfu um að fá annað herbergi á þessu ógeðis hóteli. Ekki vilja þeir bera ábyrgð á þeirri staðreynd að Icelandair sendi þeim svo sannarlega allar upplýsingar um 9 tíma seinkun á flugi frá Glasgow.

Ég sendi þessar myndir á starfsmann ferðaskrifstofunnar strax eftir að heim var komið ásamt útskyringum á óþrifnaði og öðru. Ég taldi fullvíst i að um mistök ferðaskrifstofunnar væri að ræða, það er jú manlegt að gera mistök og hef sýnt þeim þolinmæði í 2 vikur að bæta fyrir mistökin sem starfsmenn ferðaskrifstofunar hafa engan áhuga á og vísa allri ábyrgð frá ferðaskrifstofunni og finnst leitt að hótelið hafi ekki staðist væntingar eins og starfsmaður orðaði það í tölvupósti og láta standa upp úr svar frá hótelinu þar sem starfsfólk hótelsins kannast ekki við neitt og dásamar þetta allt saman.

Svona líta hótelherbergi út sem Úrval Útsýn selur fólki, ferðaskrifstofa sem gefur orðunum hámarksgæði og þjónusta alveg nýja merkingu í mínum huga.

Deilið að vild því kæru vinir það er nákvæmlega ekkert athugavert við að upplýsa fólk um svona viðskiptahætti. Það kostaði okkur 190 þúsund að komast að því að við verslum ekki við þessa ferðaskrifstofu aftur !!