Fararheill fær reglulega fyrirspurnir frá fólki sem langar til Algarve í Portúgal. Þangað eru engar skipulagðar ferðir héðan né heldur beint flug svo það er meira en segja að njóta lífsins þar en ekki til dæmis á Costa del Sol á Spáni. En þar sem er vilji eru leiðir.

Algarve á marga aðdáendur hérlendis en engin bein leið á staðinn. Mynd all4u+
Leiðirnar á staðinn eru reyndar fjölmargar ef út í það er farið. Flug til Spánar og þaðan áfram í tengiflugi, flug til Noregs og þaðan áfram í tengiflugi eða flug til London eða Dublin og þaðan áfram í tengiflugi. Á öllum þessum leiðum starfa lággjaldaflugfélög sem bjóða ódýrar ferðir en samtalan getur samt orðið töluverð.
Þannig er hægt að komast til Barcelóna og þaðan áfram til Faro á Algarve með Vueling og sömu leið til baka í júní og júlí kringum 60 þúsund krónur ef enginn er farangurinn. Ekkert hræðilegt verð en kannski of lítill munur á því flugi og tilheyrandi millilendingu og bið og að kaupa bara beina pakkaferð til Costa del Sol eða Alicante. Svipað verð ef flogið er með Wow Air til Dublin og þaðan áfram með Ryanair til Algarve. Heildarferðin aldrei undir 60 til 65 þúsund á mann miðað við lægsta verð þetta sumarið.
Þýska flugfélagið Germanwings býður einnig ferðir héðan til Þýskalands og þaðan til Faro í sumar og okkur sýnist þeir vera að bjóða hvað best. Með tösku meðferðis plús lágmarksbið í Köln á útleið og Dusseldorf á heimleið og þá staðreynd að hægt er að bóka farangurinn alla leiðina fæst flug fram og aftur með þeim í sumar fyrir alls 67 þúsund krónur á mann þegar þetta er skrifað. Svipað og aðrir en taska hér innifalin.
Samtala á par eða hjón því um 140 þúsund krónur sem kann að hljóma dýrt en er þegar allt er saman dregið ekki mikið dýrara en beint flug til Alicante héðan. Plús sú staðreynd að gisting er tiltölulega ódýr á Algarve ef fólk lætur þriggja stjörnu hótel nægja eins og sjá má hér að neðan. Slík gisting í tvær vikur kostar hjónakornin ekki nema tæpar 50 þúsund krónur og tveggja vikna sumarfrí á Algarve kostar því ekki meira alls en 200 þúsund krónur. Það kvartar enginn yfir því.

Finna má fjölda ágætra hótela á Algarve yfir sumartímann niður í 3000 krónur per nótt.







