Áætlun Icelandair hefur farið nokkuð úr skorðum þennan daginn vegna vélabilunar í vél flugfélagsins frá Washington liðna nótt. Það hefur í för með sér nokkrar tafir á öðrum flugleiðum og ágætt fyrir farþega að rifja upp réttindi sín.

Muna rétt ykkar þegar tafir eru langar. Mynd Woodys Aeroimages

Muna rétt ykkar þegar tafir eru langar. Mynd Woodys Aeroimages

Eins og hjá flestum öðrum flugfélögum þessa dagana er vélafloti Icelandair keyrður svo viðstöðulaust að ekkert má út af bera. Vélabilun varð þess valdandi að vél Icelandair milli Washington D.C. og Keflavíkur var snúið til Toronto og það hefur keðjuverkun í för með sér þennan daginn.

Eins og sjá má á vef Keflavíkurflugvallar hefur Icelandair seinkað tveimur flugum sínum frá Kaupmannahöfn verulega. Í öðru tilvikinu um tæpar þrjár stundir og því seinna um tæpar níu stundir. Hér um áætlun að ræða sem ekki er gefið að standist þegar til kemur.

Farþegar ættu að rifja upp réttindi sín í tilfellum sem þessum. Séu tafir meiri en þrjár klukkustundir á flugleiðinni Köben – Keflavík eiga farþegar að líkindum rétt á bótum samkvæmt Evrópureglum. Á vef Icelandair er ekki tekið fram hvers vegna vélarnar tvær tefjast svo mjög frá Köben en leiða má líkum að því að það stafi af keðjuverkun. Engar áberandi tafir eru á öðrum ferðum þessa sömu leið.

Sé það rétt eiga allir er tefjast lengur en þrjár stundir rétt á tæpum 40 þúsund krónum í bætur. Plús mat og drykk í flugstöðinni meðan beðið er.

cop