Í stað þess að eyða fjármagni til að bæta þjónustu sem er lakari en en hjá 90 prósent allra evrópskra flugfélaga hyggur Wow Air nú á nýja landvinninga. Á Indlandi.

Bætt þjónusta? Neibbs. Fleiri áfangastaðir? Jebbs. Skjáskot

Ísland farsæla Frón er vinsælt hjá indverskum þessi misserin. Að minnsta kosti tvær vinsælar Bollywood myndir hafa verið teknar að hluta til hérlendis síðustu árin og fátt er vinsælla hjá þjóð Gandhi´s en sápukúlubíómyndir og þá helst með söngvum og dönsum á fimm mínútna fresti.

Þar sem seðlar finnast eru tækifærissinnar á vappinu. Wow Air hefur nú auglýst beint flug milli Íslands og Indlands og mun það vera í fyrsta skipti í sögunni sem það er í boði. Það meira að segja hægt að negla flug fram og aftur niður í 40 þúsund krónur ef þú ert meðlimur í Wow-klúbbnum og langar að ferðast til Indlands með ekkert meðferðis. Hinir sem gjarnan vilja bursta tennur og skipta um nærur engang i mellem þurfa að punga út rúmlega sextíu þúsund krónum að lágmarki fram og aftur til Nýju-Delí.

Ekkert slæmt við það. Það príma verð á beinu flugi til Indlands og heim aftur og vel samkeppnishæft við sambærilegar flugferðir frá meginlandi Evrópu. Verra að þetta er „kynningarverð“ hjá Wow Air og líkur á að fargjöld hækki duglega mjög fljótlega.

Allra verst þó, að okkar mati, að það er hægt að láta sig hafa flug til Englands, Frakklands eða Spánar í níðþröngu 76 sentimetra sætisplássi Wow Air á almenningsfarrými. En að sitja í tíu klukkustundir út og tólf klukkustundir heim aftur í sætum þar sem meðalmanneskja rekur hnén í sætisbakið fyrir framan er ekki á nokkurn mann leggjandi.

Þannig að við hér segjum nei takk!

PS: Auglýsing Wow Air gefur til kynna að hið fræga hof Taj Mahal sé að finna í Nýju-Delí. Það er ekki svo. Taj Mahal, sem er nota bene þakið stillönsum næsta árið eða svo, er í borginni Agra í tæplega fjögurra stunda fjarlægð frá Nýju-Delí.