Fjölmiðlar hafa greint frá því að Icelandair hyggi á beinar ferðir frá Íslandi til Indlands í náinni framtíð. Þá þurfa þeir íslensku að hysja upp um sig buxur því frá nágrannalöndum okkar er oft komist fram og aftur fyrir 60 þúsund kall. Hafi Íslendingar hug á að heimsækja Nýju-Delí í næsta mánuði fæst flug frá Osló allt niður í 48 þúsund krónur.

Fátækt og fegurð. Allt í boði í Nýju-Delí á Indlandi
Fjörutíu og átta þúsund kallinn fram og aftur til Indlands frá Osló hljómar vel enda flugið langt en samt ferðast með einu besta flugfélagi heims. Við auðvitað þurfum að koma okkur til Osló og heim aftur frá Osló að ferð lokinni og miðað við verðlag til og frá í júní fæst það með farangri kringum 20 þúsund kallinn þegar þetta er skrifað. Ergo: flug alla leið frá Keflavík til Nýju-Delí með stoppi í Osló og Istanbúl og heim aftur sömu leið í næsta mánuði heilar sextíu og átta þúsund krónur á kjaft.
Hvernig finnur þú svo viðkomandi tilboð? Smelltu þér yfir á norsku útgáfu flugleitarvefsins Momondo og leitaðu að flugi frá Osló til Nýju-Delí í júnímánuði. Hvorki flókið né erfitt 🙂
Það verður barasta alls ekkert ódýrara að komast til Indlands og gildir þá einu hvað Icelandair sér fyrir sér í framtíðinni. Turkish Airlines bjóða einfaldlega betur 🙂







