Örlítið meira röfl um nýkynnt flug Wow Air til Indlands sem hefst í desember næstkomandi. Hvernig getur mögulega staðið á því að íbúar Los Angeles, á vesturströnd Bandaríkjanna, njóti næstum nákvæmlega sömu kjara á flugi til Indlands og við Íslendingar?
Við hér lærðum sömu skólabókarstærðfræði og flestir aðrir þarna úti. Tveir plús tveir eru fjórir og allt það.
Gott og blessað. En hvernig Wow Air fer að því að bjóða íbúum Los Angeles í Kaliforníu á vesturströnd Bandaríkjanna nánast nákvæmlega sömu fargjöld frá Los Angeles til Indlands og okkur frá Keflavík til Indlands er algjörlega á skjön við skólabókarstærðfræðina.
Eins og sést á meðfylgjandi skjáskotum þá kostar nánast það sama að fljúga frá Keflavík beint til Nýju-Delí með Mogensen og kó hjá Wow Air og það kostar alla leið frá Los Angeles???
Hmmmm.
Er allt í einu ókeypis að fljúga milli Los Angeles og Keflavíkur og sömu leið til baka? Og ef svo er, hvers vegna hefur Mogensen ekki auglýst þau stórkostlegu fargjöld?
Enn eitt dæmið um að íslensku flugfélögin bjóða útlendingum oft og ítrekað MIKLU, MIKLU betri kjör en þau bjóða okkur mölbúunum hér á klakanum.
Við gerum vel í því að sniðganga slík fyrirtæki…
PS: 199 bandarískir dollarar eru, þegar þetta er skrifað, alls 20.632 krónur.







