Tíðindi

Tími til að grípa gæs Wow Air

  29/05/2012desember 19th, 2013No Comments

Jæja, þá er ekki ein einasta afsökun fyrir að spendera ekki einni utanlandsferð á fjölskylduna eða betri helminginn. Aftur bjóða bæði Iceland Express og Wow Air upp á verðsprengju í flugferðum.

Er um sams konar tilboð að ræða og fyrir helgina þegar Iceland Express auglýsti nokkra áfangastaði sína á 9.900 krónur og Wow Air svaraði því með tilboði til tveggja borga þúsund krónum ódýrar.

Nú kostar til miðnættis á morgun 9.900 krónur aðra leiðina með Iceland Express til Kaupmannahafnar, Edinborgar, London, Vilníus, Bologna og Basel. Gildar miðar keyptir nú í allt sumar til ágústloka.

Sömuleiðis er hægt að fá flugfar aðra leiðina til Kaupmannahafnar eða London aðra leiðina á 8.900 krónur með Wow Air. Þeir miðar gilda þó aðeins um flug í júní.

Heimasíða Wow Air hér. Heimasíða Iceland Express hér.