Tíðindi

Meirihluti vill ekki sjá net í flugvélum

  29/05/2012No Comments

Fleiri en færri hafa engan áhuga að hafa netaðgengi í flugi samkvæmt nýrri könnun. 39 prósent vilja alls ekki sjá slíkt meðan 38 prósent er sama til eða frá. Aðeins 23 prósent vilja gjarnan njóta slíkrar þjónustu í millilandaflugi.

Nettenging um borð í flugvélum heillar ekki alla samkvæmt nýrri könnun Fararheill

Töluvert er rætt um net- og farsímasamband í flugi erlendis og allnokkur flugfélög hafa þegar tekið upp á að bjóða slíka þjónustu. Er reyndar afar misjafnt hversu öflug slík þjónusta er enn sem komið er en þeir sem til þekkja segja nethraða sem í boði er yfir sjó töluvert undir því sem fólk er vant með nettengingum heimafyrir eða í fyrirtækjum.

En það er ekki eina vandamálið heldur hitt líka að það getur verið truflandi ef allir í kring eru með sínar eigin fartölvur og eða farsíma. Ekki þarf að fara mörgum orðum um blaður í farsíma í þotum og ástæða er fyrir að víða í strætisvögnum eða neðanjarðarlestum er fólk beðið að tala sem minnst í farsíma sína.

Þetta er sennilega ástæða fyrir að tæp 40 prósent þeirra 208 sem þátt tóku í könnun Fararheill að þessu sinni segjast ekki vilja slíka þjónustu um borð í þotum.

Að þessu sögðu er ljóst að fólk í viðskiptaerindum mun taka nettengingu fagnandi enda þýðir það að hægt er að vinna meira og betur á leiðinni í tilvikum. Sömuleiðis er líklegt að farsímasamband yrði vel þegið af sömu aðilum.

Könnunin er ekki vísindaleg á neinn hátt heldur einungis til fróðleiks en draga má nokkrar ályktanir af slíkum könnunum.

Ný könnun er komin á vefinn og þakkar ritstjórn kærlega þátttökuna hingað til.