Tíðindi

Heimsendir heillar hundruð þúsunda

  26/05/2012No Comments

Það er gósentíð í ferðaþjónustu í Belís, Gvatemala, Hondúras og El Salvador og það án þess að að þjóðirnar hafi varla lyft litlafingri til. Aðdráttaraflið stafar af hugsanlegum heimsenda samkvæmt tímatali Maya þann 21. desember 2012.

Víða í Mið Ameríka má finna leifar menningar Maya en túlkun froðuhausa á tímatali þeirra hefur valdið ferðamannaæði

Heimsendi er raunar talin fráleit kenning meðal vísinda- og fræðimanna en það hefur ekki stöðvað áhugamenn og klikkhausa sem halda því statt og stöðugt fram að veröldin eins og við þekkjum hana muni enda þennan dag í desember næstkomandi.

Ástæðan er að tímatal Maya, sem öllu réðu á stóru svæði í Mið-Ameríku í um tvö þúsund ára skeið frá þúsund fyrir Krist fram til 900 eftir Krist, endar þennan dag næstkomandi desember. Það telja froðuhausar merkja heimsenda og hefur tekist að auglýsa og selja þá hugmynd víða. Fræðimenn telja þó líklegra að Mayar hafi ekki haft betri upplýsingar um hugsanlegan heimsenda en nokkur annar og endalok tímatalsins tákni aðeins að nýtt dagatal taki þá við.

En þetta selur heil ósköp og fjöldi ferðamanna á slóðir Maya hefur sjaldan verið meiri en nú. Svo mjög reyndar að allar þjóðirnar, og helst Mexíkó, bæta nú gráu ofan á svart og auglýsa grimmt líka.

Hætt er við að einn og einn ferðamaður heimti mögulega endurgreiðslu þegar 22. desember rennur upp án vandkvæða.