Nýr dagur – ný tilboð frá flugfélögunum. Daginn eftir að Iceland Express hendir inn sprengju á flugmarkaðinn með fargjöldum aðra leiðina til nokkurra borga á 9.900 krónur bætir Wow Air um betur. Nú kemst fólk til Parísar og Kölnar aðra leiðina í júní fyrir 8.900 krónur.
Um takmarkað sætaframboð er að ræða og valdar dagsetningar en prísinn er príma og er nú að koma í ljós hversu mjög neytendur njóta þess þegar raunveruleg samkeppni myndast á markaði.
En líklega fer verð ekki lægra en orðið er að sinni enda þurfa bæði flugfélögin að greiða laun, vélaleigu og helst arð til eigenda og ekki er heldur ýkja sniðugt fyrir fyrirtæki að verðleggja vöru sína almennt of lágt.
Tilboð Wow gildir til miðnættis í kvöld. Heimasíða þeirra hér.







