Flugfélagið Icelandair auglýsir sérstök tilboð til Orlando á vef sínum þessa dagana og þar lofað einni frínótt þegar gist er þrjár til fimm nætur á svæðinu. Eitthvað er það málum blandið samkvæmt úttekt Fararheill.

Fólk heima getur sjálft græjað betri „tilboð“ en Icelandair er að bjóða á vef sínum.
Einhver hefði haldið að flugfélagið sem hefur flogið til Orlandó um áraraðir væri nú komið í gott tengslanet við hótel- og gistihúsaeigendur þar ytra. Tengslanet sem tryggði viðskiptavinum flugfélagsins sérlega góð kjör þegar í boði væru „tilboðsferðir.“
Ekki er það þó raunin. Litli Fararheill býður betra verð á pökkum Icelandair en Icelandair sjálft. Við tókum stikkprufu í fimm nátta ferð 9. september til 14. september næstkomandi og fengum þetta upp hjá flugfélaginu:

Flug og gisting í fimm nætur á International Palms Resort kostar manninn 111.700 krónur og flugið og gistingin á Florida Hotel fæst á 123.100 krónur per haus. Ekkert afleitt en ekkert súper heldur. Sérstaklega ekki þegar við skoðum hvað þetta kostar okkur ef við eyðum heilum fimm mínútum og græjum þetta sjálf.
Þá finnst flugið 9. til 14. september niður í 89.315 krónur á mann miðað við tvo saman með Icelandair. Á hótelvef Fararheill fást þessar fimm nætur á International Palms Resort niður í 32.756 krónur og fimm nætur á Florida Hotel kosta hjá okkur 53.664 krónur.
Sem þýðir að með því að bóka flug og hótel sjálf kostar heildarpakkinn á International Palms Resort 211.394 krónur. Það er 12.006 krónum lægra verð en „tilboð“ Icelandair sem nota bene inniheldur eina fría nótt.
Heildarpakkinn á Florida Hotel kostar alls 232.294 krónur ef þið bókið flug og hótel sjálf. Þar sparast alls 13.906 krónur umfram það sem Icelandair býður á frínáttatilboði sínu.
Engar stórupphæðir í neinu tilliti. En fantagott kaup fyrir fimm mínútna vinnu við eldhúsborðið heima. Svo má spyrja hversu mikið er hægt að kalla eitthvað „tilboð“ þegar Jón og Gunna á Tröllaskaga geta græjað sömu ferð á lægra verði með net og tölvu? Ekki eru þau með tengslanet eða sérdíla á flugi og gistingu…










