Lesendur Fararheill hafa kveðið upp sinn dóm. Meirihluti þátttakenda telur ekki þörf á leiðsögn sérstakra fararstjóra á ferðalögum erlendis.

Fararstjórar eru jafn misjafnir og þeir eru margir en fyrir meirihluta er þörfin fyrir þá lítil sem engin að mati lesenda Fararheill
Íslenskar ferðaskrifstofur hafa verið seinar til að kveikja á þeirri peru að stór hluti ferðafólks er orðið það siglt á heimsins höfum að það finnur ekki þörf fyrir fararstjóra í ferðum sínum samkvæmt könnun Fararheill. Þar segja 52 prósent alls enga þörf á slíku að sínu viti, 29 prósent telja þörf á því í stöku tilfellum og einungis 19 prósent vilja helst ekki ferðast án fararstjóra.
Niðurstaðan er í takt við tilfinningu ritstjórnar að fólk sé almennt ekki reiðubúið að greiða aukalega til að fararstjóri sé með í för. Fararstjórar kosta peninga og mjög er misjafnt hversu góðir, kunnáttusamir eða hjálpsamir slíkir aðilar eru. Sumir eru jú alveg frábærir og gæða ferðir sínar bæði lífi og skemmtilegheitum en aðrir láta lítið fyrir sér fara og gera ekkert aukalega til að láta viðskiptavinum líða sem allra best.
Hins vegar eru auðvitað ferðir sem kalla á að með í för sér aðili sem þorir og þekkir. Sérstaklega á þetta við um lengri og dýrari ferðir til landa á borð við Kína, Indland, Rússland eða slík lönd þar sem kunnátta í ensku eða dönsku er lítils virði og því öllu erfiðara að bjarga sér komi eitthvað upp á á ferðalaginu.
Reyndar eru flestir aðilar að átta sig á þessu smám saman. Við getum langflest bjargað okkur án vandkvæða í Evrópu og hvað varðar að verða sér úti um þekkingu á stöðum og borgum þá er ógrynni handbóka í boði auk þess sem finna má fínustu ferðavísa á netinu og fá beint í símann eða spjaldtölvuna hvar og hvenær sem er.
Alls greiddu 756 atkvæði í þessari könnun Fararheill. Um er að ræða vefkönnun svo hún er ekki vísindaleg á neinn hátt en ætti að gefa ágætar vísbendingar um stöðu mála.
Við þökkum þátttökuna.







