Stikkprufur Fararheill á fargjöldum til og frá London í sumar leiða í ljós að British Airways er oftast að bjóða lægri fargjöld en Icelandair.

Bretarnir hafa vinninginn til og frá London. Samsett mynd
Í þremur tilvikum af fjórum alls reynist ódýrara að fljúga út og heim aftur með breska flugfélaginu en því íslenska.
Þetta má glögglega sjá á meðfylgjandi töflu en leitað var samtímis hjá báðum aðilum kl. 14.00 þann 29. maí 2016. Aðeins miðað við svokölluð plúsfargjöld BA sem veita rétt á sæti og 23 kílóa tösku auk handfarangurs.
Það nánast alveg sami pakki og Icelandair býður fólki fyrir utan að hjá Bretunum er matur og drykkir innifaldir í verðinu ólíkt því sem gerist hjá Íslendingunum. Með það í huga að bjórdolla plús samloka hjá Icelandair skjagar langleiðina í tvö þúsund krónur er lítil spurning hver er í heildina að bjóða lægri fargjöld.







