Nema þú viljir eiga á hættu að eignast börn með minna höfuð en eðlilegt þykir er kannski ráð að sleppa Flórídaferðinni næstu mánuðina.

Þetta er skæður djöfull og allra verstur gagnvart konum sem hyggja á barneignir.
Fræðimenn margir vara nú opinberlega við ferðalögum til sólskinsfylkisins bandaríska enda þykir töluverð hætta fyrir hendi að sú skæða veira zika, sem berst með tiltekinni tegund moskítóflugna, gæti vel gert usla í syðstu fylkjum Bandaríkjanna síðar á árinu.
Þykir ljóst að miðað við útbreiðslu veirunnar norður á bóginn frá Suður-Ameríku og kjöraðstæður á Flórída að það sé einungis tímaspursmál áður en veiran gerir strandhögg í Bandaríkjunum.
Það staðhæfir breskur fræðingur í hitabeltissjúkdómum í dagblaðinu Independent og yfirvöld í Flórída virðast gera sér grein fyrir hættunni því farið hefur verið fram á mikla fjárveitingu til vonar og vara.
Flórída þó ekki eina ríkið sem þykir líklegt sem næsta stopp hjá zikaeitruðum moskítóflugum. Strandbæir við Texas og Louisiana þykja líka líklegir hættustaðir þegar fram líða stundir.
Hafa skal í huga að veiran finnst aðeins í einum af hverjum fjórum sem eru stungnir af umræddri tegund af moskító. Talið er líklegt, en ósannað, að sú veira geti haft sérstaklega slæm áhrif á óléttar konar og valdið fóstri ómældum skaða.







