Þessa stundina eru, að okkur skilst, einhver hundruð íslenskra nýstúdenta að fagna þeim stóra áfanga í lífinu í bænum Magalluf á Mallorca á Spáni. Það er nú vægast sagt ekki ýkja góður staður til þess arna.

Best að leggja sig hér. Algeng sjón í djammstrætum Magalluf á Mallorca
Magalluf hefur um rúmlega tuttuga ára skeið verið gósenland meyja og drengja frá norðurhöfum enda áfengi þar næstum ókeypis, hiti í lofti, strendurnar sallafínar og kynlíf svo algengt að það er jafnvel stundað á götum úti. Þveröfugt við heimalöndin þar sem áfengi er skattað í frumeindir, hitastig kaldara en Hanna Birna Kristjánsdóttir, strendurnar urð og grjót og kynlíf á götu úti væri forsíðuefni í öllum fjölmiðlum.
Sem er auðvitað afskaplega heillandi fyrir hormónafulla nýstúdenta með bjarta framtíð, full veski og óþrjótandi orku til að skemmta sér.
Það er gott að ímynda sér að djammið á Magalluf sé nú ekkert öðruvísi en það hefur alltaf verið á partístöðum á Spáni. Marbella á sínum tíma þótti ekki lítið öfgafullur staður og á Ibiza hefur 24 stunda drykkja og jafnvel eitthvað með því tíðkast meðal yngri gesta um áraraðir.
En á árum áður þurftu partíljón ekki að hafa verulegar áhyggjur af ýmis konar efnum eins og nú er. Helsta hætta var að reykja yfir sig af kannabis. En á Magalluf er ýmsum dularfyllri efnum laumað í drykki, mat eða jafnvel bara í nálægð við viðkomandi af illgjörnum aðilum. Efni á borð við fljótandi alsælu, ketamín, rohypnol eða burundanga.
Slík efni finnast ekki aðeins í fórum vafasamra manna þar sem yngra fólk kemur saman og drekkur eins og enginn sé morgundagurinn heldur og er hægt að kaupa þau fyrir lítið á götum Magalluf.
Rohypnol þekkja sennilega margir sem „nauðgunarlyfið“ sem blandað er út í drykki þegar enginn sér til. Fórnarlömb manna sem það brúka hafa innan við tólf klukkustundir til að hafa samband við lögreglu og sjúkralið ef eitthvað bjátar á eftir að hafa innbyrt lyfið áður en allar leifar af því hverfa úr líkamanum. Eftir það er ekkert hægt að sanna.
Rohypnol er samt brandari miðað við burundanga sem er mjög „inn“ hjá vafasömum aðilar í Magalluf samkvæmt þarlendum fréttum. Það nægir að anda því efni að sér til að komast í hundrað prósent kæruleysisgír á tíu til tólf mínútum. Kæruleysisgír ofan í margra klukkustunda drykkju tryggir nokkuð örugglega að viðkomandi man ekki eitt augnablik frá kvöldinu áður. Hvað þá að að eitthvað hafi gerst um nóttina.
En hvers vegna að segja Magalluf eitthvað hættulegri en aðra staði þar sem hundruð þúsunda ungmenna koma saman og skemmta sér?
Það kannski gefur vísbendingar að Magalluf er eini staður Spánar þar sem bæði þýskir og breskir lögreglumenn aðstoða spænsku lögregluna við að viðhalda lögum og reglu. Magalluf er líka eini staður Spánar þangað sem minnst fjögur hjálparsamtök frá fjórum löndum starfa öll sumur í þeim tilgangi einum að hjálpa þeim er hafa drukkið yfir sig, orðið fyrir barsmíðum, verið rændir eða eitthvað þaðan af verra.







