Sennilega er vænlegt fyrir gallhörðustu aðdáendur knattspyrnufélagsins Real Madrid að spara peningana sína sem aldrei fyrr. Allavega ef þeir hinir sömu ætla sér að sleikja sólskinið í framtíðinni á Real Madrid Resort Island.

Í framtíðinni verða það ekki aðeins Abu Dhabi og Dúbai sem trekkja að ferðafólk. Furstadæmið Ras Al Khaimah hyggst keppa um hylli fólks líka og býður nákvæmlega sömu yndislegu sandstrendurnar.

Í framtíðinni verða það ekki aðeins Abu Dhabi og Dúbai sem trekkja að ferðafólk. Furstadæmið Ras Al Khaimah hyggst keppa um hylli fólks líka og býður nákvæmlega sömu yndislegu sandstrendurnar.

Forráðamenn knattspyrnuliðsins hafa náð samningum um að byggja upp heila eyju fyrir utan strönd Ras Al Khaimah sem er eitt hinna Sameinuðu arabísku furstadæma nokkru austar en Dúbaí.

Þar hyggst knattspyrnufélagið opna árið hótel- og skemmtigarð þar sem allt verður tileinkað og merkt Real Madrid í hólf og gólf. Þrjú hótel, lúxusíbúðir, skemmtigarður og heill knattspyrnuleikvangur sem opinn verður til hafs svo fátt eitt sé talið.

Til að tryggja aðsókn verður leikmönnum liðsins gert að þvælast um þegar færi gefst og liðið mun undirbúa hverja leiktíð hér á þessum stað og þannig á aðdáendum að gefast kostur að komast nær stjörnunum en gerist og gengur.

En herlegheitin munu kosta skildinginn þó ekkert sé enn ljóst um verðlagningu. En það segir sig sjálft að heil manngerð eyja tileinkuð liðinu er ekki alveg ókeypis og þá fjárfestingu þarf liðið að fá til baka með einhverjum hætti.