Icelandair húrrar út tilboðunum þessa dagana og hið fimmta í röðinni á jafnmörgum dögum er sólarhringstilboð til London.
Er tilboðið gott eða 12.900 krónur aðra leiðina eða 28.700 krónur báðar leiðir. Er það 10 til 15 þúsunda króna afsláttur af hefðbundnu fargjaldi.
Tilboð þetta gildir þó aðeins um ferðir frá 9. október til 15. desember sem er þó príma tími sé hugmyndin að anda að sér breskri jólastemmningu en verðlag í London er fjarri því að vera mjög yndislegt. Tilboðið gildir aðeins til miðnættis 22. október.
Heimasíða Icelandair hér.






