Þeir sem hyggja á ferðalög til Frakklands ættu að fylgjast vel með fréttum fram að brottför.
Þar er allt í volli og hers höndum sökum verkfalla víða um landið og hafa ferðamenn lent illa í því enda hafa bæði flugfélög, lestir og rútu- og strætófyrirtæki þurft að fella niður ferðir sökum þess að verkfallsverðir hafa blokkerað aðgengi að bensínstöðvum frá því um helgina.
Ekkert lát virðist á mótmælunum sem beinast gegn niðurskurðarhugmyndum stjórnvalda og á stöku stöðum hefur komið til átaka við lögreglu vegna þessa. Þá er heldur ekki útilokað að sumir áhugaverðir staðir í stærri borgum séu beinlínis óaðgengilegir enda mótmælin fjölmenn og mótmælt víða um götur.






