H vort forsvarsmenn Air Canada fylgdu fargjöldum Icelandair eða væs vörsa skal ósagt látið. Staðreyndin er sú að afar litlu munar á fargjöldum þessara flugfélaga til og frá kanadísku borginni Toronto til Keflavíkur.

Samkeppni til Toronto en verð furðu keimlík…

Air Canada tilkynnti nýlega og óvænt að flugfélagið myndi bjóða flug til Keflavíkur þetta sumarið og fram á haustið. Það í beinni samkeppni við Icelandair sem býður flug sömu leiðina.

Samkeppni góð og blessuð en það er undarlega lítill munur á fargjöldum þessara flugfélaga. Lægsta fargjaldið til Toronto og heim aftur með Air Canada í sumar kostar manninn rúmar 57 þúsund krónur á sardínufarrými. Icelandair býður sömu vöruna lægst á rúmar 59 þúsund krónur.

Sama uppi á tening þegar skoðuð eru fargjöld með tösku. Munurinn er þúsund kall eða tveir. Tæknilega hægt að kalla það samkeppni en raunverulega ekki.  Ekki frekar en að samkeppni ríki milli Bónuss og Krónunar. Svo lítill verðmunur á sömu leiðinni bendir þvert á móti til samráðs en ekki samkeppni.

En hvað vitum við svo sem…