A llir þeir sem lesa vitræna vefmiðla vita að söngvarinn, leikarinn og Íslandsvinurinn Jon Bon Jovi rekur sín eigin góðgerðarsamtök til hjálpar þeim er eiga ekki ofan í sig og á í New Jersey þaðan sem kappinn rekur ættir. Þeir hinir sömu vita þá kannski líka að ein leiðin til að afla tekna fyrir samtökin er að selja mat á litlum og einföldum veitingastað sem einnig er í New Jersey.

Á hversu mörgum matsölustöðum ræður þú hvað þú greiðir fyrir matinn?

Á hversu mörgum matsölustöðum ræður þú hvað þú greiðir fyrir matinn?

Fararheill prófaði staðinn hans fyrir eigi svo löngu og erum barasta alls ekki feimin að mæla með þeim stað hundrað og tíu prósent. Staðurinn, Soul Kitchen, er reyndar ekki alveg miðsvæðis og vissulega ekki í besta hverfi sem sögur fara af en sé fólk í grenndinni, eins og gæti orðið raunin nú þegar Icelandair flýgur til Newark í New Jersey, eru til verri staðir til að borða og fáir þeirra nota peningana til góðra málefna.

Raunar er það svo að hver viðskiptavinur á Soul Kitchen ákveður sjálfur hvað hann borgar fyrir matinn. Það finnst ekkert verð á neinum rétti á matseðlinum. Matseðillinn samt stútfullur af spennandi réttum og þó ekki sé neinn lúxus innandyra, lýsingin dálítið björt, stólarnir aðeins of harðir og viðskiptavinir  er eitthvað æði þægilegt að labba út að lokinni góðri máltíð vitandi að sá peningur sem þú reiddir af hendi fari til fólks sem minna má sín.

Fyrir þá sem ekki vilja láta góða tilfinningu og samkennd duga ætti kannski að kitla að Bon Jovi sjálfur er víst sjálfur nokkuð tíður gestur hér þegar hann er ekki að túra og trylla lýðinn. Það eru til mun verri frægir einstaklingar að hitta í eigin persónu.

Við vorum tilbúin með leiðbeiningar fyrir leigubílstjórann ef vera kynni að sá vissi ekki hvar Soul Kitchen væri að finna. En sá hló að okkur. Allir í New Jersey vita hvar Soul Kitchen er.


View JHJ Soul Kitchen in a larger map