Sumir vilja meina að Grænhöfðaeyjur séu hinar nýju Kanaríeyjur. Við hér ekki alveg sammála því mati en fyrir þá sem vilja bera saman er kjörið tækifæri til í vetur. Það nefninlega komist frá Keflavík til Grænhöfðaeyjanna allt niður í 58 þúsund krónur á haus.

Á Grænhöfðaeyjum eru fleiri fallegar strendur en mannfólk.
Ók, hér klárlega ekki um beint flug að ræða en verðið er þrátt fyrir það skrambi gott.
Hér um að ræða að kaupa flug með Icelandair til Manchester, lægsta verð á ódýrasta farrými um 28 þúsund krónur, og hins vegar að bóka flug til Sal á Grænhöfðaeyjum og til Manchester aftur gegnum bresku ferðaskrifstofuna Thomas Cook. Fjöldi ferða í boði allt niður í 28 þúsund krónur nánast í allan vetur.
Ekki amalegt verð á flugi sem í heildina tekur næstum 20 klukkustundir jafnvel þó lítið sem ekkert megi hafa meðferðis á ódýrasta farrýminu. Kannski tíu þúsund kall í viðbót ef þú þarft töskudruslu með. Svo telst verðlag á Grænhöfðaeyjum almennt seint okur út í eitt heldur þvert á móti.
Töluvert af fargjöldum Icelandair til Manchester í vetur á ofangreindu verði en tilboðsverðið til eyjunnar Sal aðeins í boði fram til hádegis að breskum tíma þann 5. október. Hafa þarf hraðar hendur 😉







