Getur verið að ævintýraferðir hvers kyns séu þegar upp er staðið meira afslappandi en sólböð á sandströndum? Það er álit 75 prósent þeirra er þátt tóku í könnun þess efnis í Bretlandi og höfðu bæði reynslu af sólstrandaferðum og utanlandsferðum þar sem útivist eða ævintýri voru í fyrirrúmi.

Meirihluti telur að ferðalög veiti meiri afslöppun því meira sem tekið er á því. Engin slökun sé í raun af hangsi á ströndum og hótelbörum. Mynd Datmater
Bretarnir kalla þetta thrillaxing sem þýða mætti, fremur illa, sem sportslökun og nær yfir þær tegundir ferðalaga þar sem einhvers konar útivist, ævintýri og eða líkamleg hreyfing kemur við sögu.
Sýnir það sig glögglega að þeir sem í þannig ferðir leggja koma heim aftur mun afslappaðri en hinir sem lágu kylliflatir á strönd með margarítu og sleiktu sólskin.
75 prósent þátttakenda sögðu að hreyfiferðir af einhverjum toga væru mun betri kostur til að gleyma áhyggjum að heiman og njóta andartaksins. Það sé öllu erfiðara á ströndinni þegar fátt er kannski um annað að hugsa en það sem heima bíður; fúll á móti í bankanum, vandamál í vinnunni eða í samböndum fólks.
Og ekki þarf einu sinni að hugsa heim á leið. Um 30 prósent sólstrandarfólks hefur einmitt áhyggjur af því hversu miklum peningum það eyði í ferðalaginu. Önnur 24 prósent hafa áhyggjur af því að þurfa að fara í megrun þegar heim er komið að fríi loknu. 18 prósent til hugsa um vandamál tengd vinnunni og óttast að snúa þangað aftur.
Plúsinn við hreyfiferðir af einhverjum toga er sá að þá gefst fólki lítill tími til að sökkva sér í hugsanir. Þær ferðir snúast um upplifun og prófa nýja hluti og þegar slíkt er í boði hugsar fólk lítið annað en andartakið.
Kemur enda í ljós að 50 prósent þátttakenda telja að hreyfiferð erlendis sé lykillinn að farsælu sambandi. Öll sameiginleg reynsla bindi fólk mun betur saman en sólbruni á ströndinni.







