Með smá sveigjanleika auk hæfileika til að púsla í klukkustund eða svo gætir þú heimsótt gyðjuna Aþenu í Grikklandi á næstu misserum og það fyrir svo hlægilega upphæð sem 35 þúsund krónur eða svo.

Varla komist alla leið til Aþenu á lægra verði en nú.
Hvað meinum við eiginlega með sveigjanleika og hæfileikum í púsli?
Bara það að norska flugfélagið Norwegian hefur hent út nokkrum vetrartilboðum á flugi hingað og þangað frá Osló og þær flugferðir ekki bundar inn í neinn sérstakan tímaramma.
Eitt helsta tilboð þeirra þessa stundina er til Aþenu í Grikklandi en flug aðra leið þangað frá Osló með sköttum og gjöldum en ekki farangri fæst næstu mánuði alveg niður í heilar 5.240 krónur miðað við miðgengi dagsins. Til baka þarf að greiða lítið eitt meira á ákveðnum dagsetningum eða þetta átta til níu þúsund krónur. Niðurstaðan engu að síður sú að hægt er að fljúga fram og aftur til Aþenu án farangurs undir 20 þúsund krónum.
Svo vel vill til líka á allmargar ferðir Norwegian til Íslands og frá í vor og sumar fást lægst niður í sextán til sautján þúsund krónur á mann miðað við sama miðgengi. Þar einnig farangurslaust reyndar en skattar og gjöld í pakkanum.
Tilfellið er þá fyrir áhugasama að setjast niður við eldhúsborðið og finna dagsetningar frá Íslandi sem stemma við flug beint til Aþenu og sömu leið aftur heim að dvöl lokinni og þannig njóta grísku gyðjunnar á algjöru botnverði. Jafnvel þó töskur bætist við og líka gisting í Osló er þetta samt gjafverð á flugi miðað við aðrar leiðir til höfuðborgar Grikklands.
Inn í þetta vantar þá hótel en hér að neðan hefurðu hótelbókunarvef sem er tvöfaldur heimsmeistari og þar ættir þú að finna gistingu í Aþenu eða Grikkland þann tíma sem þig langar að eyða þar á lægsta mögulega verði.
[alert]Í raun aðeins eitt sem hafa þarf í huga sérstaklega við svona ferðapúsl. Það er að gæta þess að hafa nægan tíma milli flugferða. Þú vilt ekki að fríið fari allt forgörðum af því að rafmagnið fór af í Keflavík og allar vélar héðan voru tveimur klukkustundum á eftir áætlun. Hafðu þann tíma eins rúman og hægt er.[/alert]






