Wow Air hefur slegið þúsund krónur af sínu lægsta verði fyrir flugmiða aðra leið til Kaupmannahafnar og London á völdum dagsetningum í aprílmánuði. Sem þýðir að þangað er komist farangurslaust undir tíu þúsund krónum.

Tíkallinn til London er ekki amalegur díll.

Tíkallinn til London er ekki amalegur díll.

Ekkert hræðilegt við það verð sem auglýst er á 8.999 en er í raun 9.998 því gamla góða bókunargjaldið er aldrei talið með. Alltaf verið að fiffa hlutina sjáiði til.

Það breytir ekki því að tíkallinn til Köben eða London er ágætt verð. Jafnvel þó tekin sé ein taska með er þetta rúmlega þrjú þúsund krónum lægra verð en finnst lægst á vef Icelandair í sama mánuði.

Svo getur fólk sparað sér dágóðan skilding í viðbót á gistingu með því að bóka á besta bókunarvef heims tvö ár í röð hér að neðan.