Síðustu mánuði eða svo hefur þótt vel gert að finna flug til Alicante á Spáni með Wow Air undir 20 til 25 þúsund krónum aðra leiðina. Nú horfir hins vegar svo við að í október og nóvember finnst sama flug niður í 9.999 krónur.

Frábær tilboð til Alicante með Wow Air á næstunni. Skjáskot

Frábær tilboð til Alicante með Wow Air á næstunni. Skjáskot

Það er frábært verð til þessa ljúfu strandborgar og vekur furðu að Wow Air skuli ekki kynna það meira. Það þykir jú ástæða til að auglýsa flug á sama verði til Amsterdam, London og Berlínar. En á þeim leiðum er reyndar samkeppni sem ekki er raunin til Alicante.

Í öllu falli er ekki um mörg sæti að ræða en þegar verðmunurinn er um 60% er aðalatriðið að grípa gæsina strax. Hika er sama og tapa í þessu tilviki.

Ennfremur er ágætt að hafa í huga að verð á gistingu í Alicante yfir vetrarmánuðina er að meðaltali 45 prósent lægra en það gerist yfir háannatímann á sumrin. Þannig fundum við á augabragði fimm stjörnu gistingu á einu besta hóteli borgarinnar í október niður í tíu þúsund krónur. Ekkert að því 🙂

alica