Forráðamenn ferðaskrifstofunnar Úrval Útsýn eru að fikta sig áfram með betri þjónustu og meðal annars á vef sínum. Þar má nú finna sérstakar tilboðsferðir á einum og sama staðnum sem er lágmarksþjónusta. En sum tilboðin eru fjári hreint undarleg.

Tilboð vikunnar hjá Úrval Útsýn. Sum þeirra skringileg í meira lagi. Skjáskot
Sérstaka gát verður að hafa á Úrval Útsýn enda sú í eigu manns sem svindlaði á þjóðinni um langt skeið hér á árum áður og slapp billega með það þegar upp komst.
Eitt „tilboð“ ÚÚ núna er ferð til Albir á Spáni og þar gist á íbúðahótelinu Kaktus með hálfu fæði. Eins og sést á meðfylgjandi skjáskoti er „tilboðsverðið“ 107.990 á mann miðað við tvo saman en skammt er í brottför eins og sjá má.
En kíki fólk á næstu dagsetningu á þessari sömu ferð til Albir á hótel Kaktus með hálfu fæði á vef ÚÚ kemur í ljós að sá túr kostar manninn 101.529 krónur.
Það er sem sagt DÝRARA að fara sérstaka tilboðsferð til Albir en ekki og munar þar tæplega 6.500 krónum á mann eða þrettán þúsund krónum á parið.
En undarlegheitin halda áfram. Önnur „tilboðsferð“ ÚÚ er til Costa Brava í byrjun næsta mánaðar. Vikutúr og gist á íbúðahótelinu Trimar. Uppgefið tilboðsverð er 99.900 krónur. En ætli fólk að bóka þessa ferð á vef ferðaskrifstofunnar kostar ferðin manninn 101.509 krónur.
Önnur ferðatilboð eru á lægra verði en sams konar ferðir aðra daga. Afslátturinn þó ekkert til að hrópa húrra fyrir. Innan við tíu prósenta afsláttur.
Við ítrekum enn og aftur að vera vakandi þegar „tilboð“ eru skoðuð. Í gær sýndum við fram á að sparnaður við „hraðtilboð“ Icelandair til Parísar nam heilum 500 krónum.

Flug og gisting á Kaktus í Albir næstu ferð á eftir „tilboðsferðinni.“ Mun lægra verð. Skjáskot







